14 January 2026
108 Reykjavík, Iceland
Suðurlandsbraut 2
Hilton Reykjavik Nordica Hotel, salur H+I á 2. hæð
Ferðatæknimót 2026
Ferðatæknimót 2026
15
Registered participants
15
Participants in matchmaking
Stefnumót fyrirtækja um lausnir á sviði ferðatækni og stafrænna tækifæra, sjálfbærni og öryggis í ferðaþjónustu
Ferðatæknimót leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örstefnumótum. Ferðatæknimót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir/bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði ferðaþjónustu. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við ferðatækni og aðra starfræna þróun, sjálfbærni og öryggi innan ferðaþjónustunnar.
Markmið viðburðarins eru að
-
Leiða saman ferðaþjónustufyrirtæki og tækni-, sjálfbærni og öryggisfyrirtæki
-
Stuðla að stafrænni þróun og markvissri notkun á tækni í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja, öllum til hagsbóta
-
Hvetja ferðaþjónustufyrirtæki til að kynna sér þær lausnir og tækni sem eru í boði
-
Bjóða tækni, sjálfbærni og öryggisfyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu
Dagskrá
-
15:00 Húsið opnar
-
15:15 Stefnumót hefjast - 7x15 mínútna fundir fara fram á 1:45 klst.
-
17:00 Dagskrá lýkur